Á Þingvöllum

diving-silfra-iceland-tour-gift-card.jpg

Snorkl í Silfru & hellaskoðun

Ævintýri milli flekanna

Tvö stopp til að upplifa einstaka náttúru Íslands!

Frábært fyrir hópa!

Silfra er einn vinsælasti áfangastaður landsins. Gjáin myndaðist fyrir um 100 árum síðan með miklum jarðskjálfra sem leiddi til þess að Norður-Ameríku og Evrasíuflekarnir ráku í sundur, með tímanum fylltist þessi gjá með tæru jökulvatni sem ferðaðist í gegnum hraunið alla leið frá Langjökli. Þetta tæra vatn gerir það að verkum að skyggnið í Silfru er engu öðru líkt!

Allir geta snorklað. Snorklarar þurfa engin réttindi, bara að kunna að synda. Aldurstakmark er 12 ára. Snorklarar fá þykkan undirgalla og þurrbúning þannig að fólk er hlýtt og þurrt á meðan á snorklinu stendur.

Þessi snorkl ferð með DIVE.IS var valin besta snorkl upplifun og fjórða besta upplifun í heimi á TripAdvisor árið 2019.

Við hittum hópinn á bílastæðinu hjá Silfru um morguninn þar sem leiðsögumennirnir kynna svæðið og útskýra hvernig ferðin gengur fyrir sig. Þú færð svo þurrbúning og allan annan búnað til að snorkla. Í ferðinni ferðu í gegnum fjögur svæði, Stóru Sprunguna, Salinn, Dómkirkjuna og Lónið, þetta tekur allt um 30 mínútur. Eftir ferðina hjálpar leiðsögumaðurinn þér að klæða þig úr búnaðinum og bíður þér upp á heitt súkkulaði og smákökur.

Þessi ferð hentar vel fyrir allar tegundir hópa. Hver leiðsögumaður fer með 6 snorklara í einu í vatnið, en við skipuleggjum það þannig með stærri hópa að allir séu að koma upp úr á svipuðum tíma. Við höfum mikla reynslu af því að leiðsegja um Silfru og kunnum að láta hlutina ganga vel fyrir hópa.

Þegar snorkl ferðinni er lokið sækir leiðsögumaður þig og keyrir með þig um 20 mínútur frá Silfru að Gjábakkahelli, vegurinn þangað er heldur ójafn og því ekki mælt með að þú keyrir þangað á eigin bíl. Gjábakkahellir á sögu sína að rekja langt aftur í tímann, en sagan segir að Gjábakkahelli sé inngangurinn í Niflheima. Í hellinum er krafist þess að klifra örlítið á miðri leið en þó er þessi ferð hentug fyrir alla sem eru hraustir og treysta sér til þess að vera í lokuðu umhverfi. Vinsamlegast mætið með góða gönguskó.

Hellirinn varð til við eldgos fyrir um 9000 árum, í dag er þar hægt að sjá fallegan rauðan lit og form, á veturna er einnig hægt að sjá fallega ísskúlptúra. Hellaferðin tekur um 1,5 klukkustund, að henni lokinni keyrum við þig til baka á bílastæðið við Silfru.

Nánari upplýsingar

  • Við getum sérsniðið þessa ferð að þörfum þínum

  • Ferðin tekur um 5 klukkustundir

  • Í boði frá 1.apríl til 30.september, við finnum tíma sem hentar hópnum þínum

  • Aðeins 6 manns með hverjum leiðsögumanni en við getum farið með marga 6 manna hópa

  • Fríar myndir fylgja öllum hópaferðum

  • Aðeins 8 manns með hverjum leiðsögumanni í hellaferðinni

  • Verðið miðast við 10 manns, við finnum rétta verðið ef þú ert með stærri hóp

  • Hafðu samband á dive@dive.is til að bóka hópinn þinn

Vinsamlegast mætið með:

  • Föðurland - buxur og bol eða þykk undirföt
  • Ullarsokka
  • Fatnað sem hentar veðri
  • Augnlinsur ef þið notið gleraugu að staðaldri
  • Gönguskó
  • Hlý föt fyrir hellaferðina

Ekki innifalið
Skutl til og frá Silfru (við getum gefið þér tilboð í veitingar og/eða akstur)

Innifalið:

  • Faglegir og þjálfaðir leiðsögumenn
  • Leiðsögumaður í Silfru
  • Leiðsögumaður í Gjábakkahelli
  • Allur nauðsynlegur búnaður til þess að Snorkla og fyrir hellaferðina
  • Heitt súkkulaði og smákökur á milli ferða
  • Aðgangsgjald í Silfru
  • Keyrsla frá Silfru að Gjábakkahelli
  • visa.png
  • mastercard.png

Öryggisreglur

Öryggisins vegna þurfa allir farþegar að:
  • hafa lesið Snorkeling Silfra Heilsufarsyfirlýsinguna, fyllt hana út og skrifað undir áður en farið er í ferðina PDF

  • hafa fengið undirskrift læknis um að þú sért hæfur til þess að kafa í Silfru ef þú ert 60 ára eða eldr PDF

  • Skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu í byrjun ferðar PDF

  • vera minnst 150 cm eða mest 200cm

  • vera minnst 45kg og ekki þyngri en 120kg

  • passa í búning sem er á stærðartöflunni okkar PDF

  • vera 12 ára

  • vera öryggur í vatni og kunna að synda

  • líkamlega og andlega heilbrigðir

  • vera tilbúnir að klæðast þröngum og jafnvel hamlandi þurrgalla

  • geta talað ensku

  • ekki vera barnshafandi

Taktu minningarnar með þér heim

Þú munt stoppa hér

Thingvellir National Park, Iceland

Open in Google Maps

Algengar spurningar

Þú gætir haft áhuga á þessu