18+ manns

snorkelers-posing-photographer-silfra-iceland-dive-is.jpg

Hópferð í Snorkl í Silfru

Frábær upplifun fyrir hópinn þinn

Hópferð í Silfru

Fáðu frábært verð fyrir hópinn þinn!

Hópferð í snorkl í Silfru er frábær hugmynd fyrir fjölskyldur, vinnustaði og vinahópa. Hér er hægt að bóka fyrir allt að 12 manns en við getum tekið miklu stærri hópa. Hafðu samband til að ræða um hópinn þinn.

Vissir þú að allir geta snorklað sem kunna að synda. Snorklarar þurfa engin réttindi. Aldurstakmark er 12 ára. Snorklarar fá þykkan undirgalla og þurrbúning þannig að fólk er hlýtt og þurrt á meðan á snorklinu stendur.

Þessi ferð með DIVE.IS var valin besta snorkl upplifun og fjórða besta upplifun í heimi á TripAdvisor árið 2019.
 
Við segjum stolt frá því að við getum boðið upp á ferðir í hæsta gæðaflokki á Silfru. Við skulum segja þér af hverju:

  • Við erum með auka leiðsögumann á Silfru sem aðstoðar bæði þig og aðra leiðsögumenn fyrir og eftir sjálft snorklið. Þessar aukahendur gera allt ferlið þægilegra fyrir þig auk þess að veita leiðsögumanninum öryggi þegar hann er kominn ofan í Silfru.
  • Við erum með stóran, upphitaðan bíl þar sem þú getur skipt um föt í skjóli frá veðri og vindum.
  • Eftir snorkl ferðina hitum við þig upp með kakó og smákökum.
  • Allir leiðsögumennirnir okkar eru reyndir atvinnu PADI kafarar og hafa farið í gegnum þjálfun áður en þeir fara með þig í Silfru.

Þessi ferð hentar vel fyrir allar tegundir hópa. Hver leiðsögumaður fer með 6 snorklara í einu í vatnið, en við skipuleggjum það þannig með stærri hópa að allir séu að koma upp úr á svipuðum tíma. Við höfum mikla reynslu af því að leiðsegja um Silfru og kunnum að láta hlutina ganga vel fyrir hópa.

Silfra er þeim eiginleikum gædd að vera með einstaklega tært vatn þar sem þú hefur allt að 100 metra skyggni. Undir yfirboðinu leynist dáleiðandi heimur sem á sér engan líkan í heiminum. Silfra liggur á milli tveggja jarðfleka, Norður Ameríkuflekans annarsvegar og Evrasíuflekans hinsvegar. Í Silfru er jökulvatn sem hefur tekið áratugi að síast neðanjarðar í gegnum hraunið sem skilur Þingvelli frá Langjökli. Vegna þessarar síunar er Silfra með einstaklega tært vatn sem gerir okkur kleift að sjá niður á botn frá yfirborðinu.

Hópafslátturinn er einungis í boði fyrir þá sem keyra sjálfir og hitta okkur á Silfru á Þingvöllum. Við getum gefið þér tilboð í akstur, láttu okkur bara vita og við skoðum málið.

Þegar þú kemur að Silfru á Þingvöllum, finnur leiðsögumaðurinn til fyrir þig þurrgalla og snorkl búnað. Leiðsögumaðurinn þinn mun útskýra og aðstoða þig við að klæða þig í þurrgallan og hvernig á að nota búnaðinn. Við notum hágæða þurrgalla frá BEAR sem halda þér þurrum og hlýum á meðan þú flýtur um í köldu vatninu. Eftir ferðina bjóðum við upp á heitt súkkulaði og smákökur til að hita okkur upp eftir ferðina. Við mælum eindregið með að skipuleggja þetta með gullna hringnum!

avatar064-150x150.jpg
animprobablelife 22.11.2018
One of the most memorable experiences of my life

THIS IS A MUST DO IN ICELAND. It’s amazing that you get to snorkel in water that took 50 years to flow into the fissure from the glacier (you get to drink it too). You’re snorkelling in between two tectonic plates which really is a one of a kind experience. The guys at Dive.is were timely with the pick up and kept us entertained the whole way. They help you with all the equipment so no stress if you haven’t snorkelled before. Our guide Jonas was super friendly and chill, and gave us a really informative briefing before we went into the water. Yes, it’s chilly but the view is amazing you really don’t notice the cold. This was without a doubt one of my favourite memories in Iceland.

tripadvisor-logo.png

Nánari upplýsingar

  • Við getum sérsniðið þessa ferð að þörfum þínum

  • Um það bil 2,5 klukkutímar

  • Í boði daglega allt árið, við finnum tíma sem hentar hópnum þínum

  • Aðeins 6 manns með hverjum leiðsögumanni en við getum farið með marga 6 manna hópa

  • Fríar myndir fylgja öllum hópaferðum

  • Verðið miðast við 18+ manns, við finnum rétta verðið ef þú ert með stærri hóp

  • Hafðu samband á dive@dive.is til að bóka hópinn þinn

Vinsamlegst mætið með:

  • Föðurland - buxur og bol eða þykk undirföt
  • Ullarsokka
  • Fatnað sem hentar veðri
  • Augnlinsur ef þið notið gleraugu að staðaldri

Innifalið í verðinu:

  • Leiðsögn um Silfru
  • Allur nauðsynlegur búnaður til þess að Snorkla
  • Heitt súkkulaði og súkkulaði smákökur eftir ferð
  • Silfru gjald (1500 kr á mann)
  • Myndir

Ekki innifalið í verðinu:

Skutl til og frá Silfru (við getum gefið þér tilboð í veitingar og/eða akstur)

Þú getur notað Ferðagjöfina hjá okkur, þú einfaldlega stimplar inn númerið á strikamerkinu í GIFT CARD flipann á greiðslusíðunni.

  • visa.png
  • mastercard.png

Öryggisreglur

Öryggisins vegna þurfa allir farþegar að:
  • hafa lesið Snorkeling Silfra Heilsufarsyfirlýsinguna, fyllt hana út og skrifað undir áður en farið er í ferðina PDF

  • hafa fengið undirskrift læknis um að þú sért hæfur til þess að kafa í Silfru ef þú ert 60 ára eða eldri PDF

  • Skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu í byrjun ferðar PDF

  • vera minnst 150 cm eða mest 200cm

  • vera minnst 45kg og ekki þyngri en 120kg

  • passa í búning sem er á stærðartöflunni okkar PDF

  • vera 12 ára

  • vera öryggur í vatni og kunna að synda

  • líkamlega og andlega heilbrigðir

  • vera tilbúnir að klæðast þröngum og jafnvel hamlandi þurrgalla

  • geta talað ensku

  • ekki vera barnshafandi

Taktu minningarnar með þér heim

Upplifðu ferðina

Loading YouTube Player...

Leiðsögumenn í þessari ferð

Þú munt snorkla hér

Silfra

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
801 Selfoss

Open in Google Maps

Algengar spurningar

Þú gætir haft áhuga á þessu