iceland-snorkeling-silfra-day-tour-dive.is.jpg

Snorkl í Silfru & standbretti

Fyrir þá sem elska vatnið!

Skoðaðu vatnið með snorkli og standbretti

Algjörlega einstök ferð!

Silfra er einn vinsælasti viðkomustaður á Íslandi. Silfra er þeim eiginleikum gædd að vera með einstaklega tært vatn þar sem þú hefur allt að 100 metra skyggni. Undir yfirboðinu leynist dáleiðandi heimur sem á sér engan líkan í heiminum. Silfra liggur á milli tveggja jarðfleka, Norður Ameríkuflekans annarsvegar og Evrasíuflekans hinsvegar. Í Silfru er jökulvatn sem hefur tekið áratugi að síast neðanjarðar í gegnum hraunið sem skilur Þingvelli frá Langjökli. Vegna þessarar síunar er Silfra með einstaklega tært vatn sem gerir okkur kleift að sjá niður á botn frá yfirborðinu. Silfra er einungis í klukkutíma fjarlægð frá Reykjavík og því fullkomin viðkomustaður á rúntinum um Gullna hringinn.

Allir geta snorklað. Snorklarar þurfa engin réttindi, bara að kunna að synda. Aldurstakmark er 12 ára. Snorklarar fá þykkan undirgalla og þurrbúning þannig að fólk er hlýtt og þurrt á meðan á snorklinu stendur.

Þessi snorkl ferð með DIVE.IS var valin besta snorkl upplifun og fjórða besta upplifun í heimi á TripAdvisor árið 2019.

Við hittum þig á bílastæðinu við Silfru um morguninn þar sem leiðsögumennirnir kynna svæðið fyrir þér og útskýra hvernig ferðin gengur fyrir sig. Þú færð svo þurrbúning og allan annan búnað til að snorkla. Í ferðinni ferðu í gegnum fjögur svæði, Stóru Sprunguna, Salinn, Dómkirkjuna og Lónið, þetta tekur allt um 30 mínútur. Eftir ferðina hjálpar leiðsögumaðurinn þér að klæða þig úr búnaðinum og bíður þér upp á heitt súkkulaði og smákökur.

Þessi ferð hentar vel fyrir allar tegundir hópa. Hver leiðsögumaður fer með 6 snorklara í einu í vatnið, en við skipuleggjum það þannig með stærri hópa að allir séu að koma upp úr á svipuðum tíma. Við höfum mikla reynslu af því að leiðsegja um Silfru og kunnum að láta hlutina ganga vel fyrir hópa.

Eftir snorkl ferðina er tími til að halda áfram á Laugarvatn sem er einungis í 30 mínútna fjarlægð fyrir stórskemmtilega Standbrettisferð. Laugarvatn er fallegt vant með mikið af heitum uppsprettum og hefur þetta verið vinsæll staður til að baða sig í aldanna rás. Grunnu svæðin í vatninu eru tilvalin fyrir standbretti fyrir byrjendur jafnt sem atvinnumenn. Þú færð allan búnað sem til þess þarf ásamt því að hitta leiðsögumenn sem að hjálpa þér að ná tökum á brettinu.
Þessi ferð er tilvalin til að upplifa fallegt útsýni úr óvenjulegu sjónarhorni.

Nánari upplýsingar

  • Við getum sérsniðið þessa ferð að þörfum þínum

  • Snorkl ferðin tekur um 2,5 klst og standbrettisferðin tekur um 1,5 klst

  • Í boði daglega allt árið, við finnum tíma sem hentar hópnum þínum

  • Aðeins 6 manns með hverjum leiðsögumanni en við getum farið með marga 6 manna hópa

  • Aðeins 8 manns með hverjum leiðsögumanni í standbrettaferðinni

  • Fríar myndir fylgja öllum hópaferðum

  • Verðið miðast við 10 manns, við finnum rétta verðið ef þú ert með stærri hóp

  • Hafðu samband á dive@dive.is til að bóka hópinn þinn

Innifalið í verðinu:

  • Faglegir og þjálfaðir leiðsögumenn
  • Leiðsögumaður í Silfru
  • Leiðsögumaður á Laugarvatni
  • Allur nauðsynlegur búnaður til þess að Snorkla og fyrir standbrettaferðina
  • Heitt súkkulaði og smákökur á milli ferða
  • Aðgangsgjald í Silfru

Ekki innifalið í verðinu:

  • Skutl til og frá Silfru (við getum gefið þér tilboð í veitingar og/eða akstur)

Vinsamlegast mætið með:

  • Föðurland - buxur og bol eða þykk undirföt
  • Ullarsokka
  • Fatnað sem hentar veðri
  • Augnlinsur ef þið notið gleraugu að staðaldri

Hægt að bóka aukalega:

  • Hádegismatur á veitingastað í skóginum
  • Inngangur á The Cave People sýninguna
  • visa.png
  • mastercard.png

Öryggisreglur

Öryggisins vegna þurfa allir farþegar að:
  • hafa lesið Snorkeling Silfra Heilsufarsyfirlýsinguna, fyllt hana út og skrifað undir áður en farið er í ferðina PDF

  • hafa fengið undirskrift læknis um að þú sért hæfur til þess að kafa í Silfru ef þú ert 60 ára eða eldri PDF

  • Skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu í byrjun ferðar PDF

  • vera minnst 150 cm eða mest 200cm

  • vera minnst 45kg og ekki þyngri en 120kg

  • passa í búning sem er á stærðartöflunni okkar PDF

  • vera 12 ára

  • vera öryggur í vatni og kunna að synda

  • líkamlega og andlega heilbrigðir

  • vera tilbúnir að klæðast þröngum og jafnvel hamlandi þurrgalla

  • geta talað ensku

  • ekki vera barnshafandi

Þú munt stoppa hér

Silfra

Laugarvatn lake

Open in Google Maps

Algengar spurningar

Þú gætir haft áhuga á þessu