Snorklað í Silfru
Allir geta snorklað í Silfru
Njóttu þess að fljóta um í tærasta vatni í heimi og fljóta á milli flekaskila tveggja heimsálfa. Snorklævintýri í Silfru á Þingvöllum er ógleymanleg stund þar sem þú upplifir nýjan heim undir yfirborðinu. Þú flýtur um á yfirborðinu í þurrgalla sem heldur fólki þurru og hlýju. Engin réttindi þarf til að snorkla! Þessi ferð með DIVE.IS var valin besta afþreying í heimi af TripAdvisor 2026.
Vissir þú að allir geta snorklað sem kunna að synda og hafa til þess almennt góða heilsu? Snorklarar þurfa engin réttindi en aldurstakmark í ferðina er 12 ára. Snorklarar fá þykkan undirgalla og þurrbúning þannig að fólk er hlýtt og þurrt á meðan á snorklinu stendur.
Við höfum starfrækt köfunar- og snorklferðir í Silfru frá árinu 1997 og getum stolt boðið upp á ferðir í hæsta gæðaflokki:
- Á svæðinu er stór upphitaður bíll þar sem gestir geta skipt um föt í skjóli.
- Eftir snorklferðina er boðið upp á heitt kakó og smákökur.
- Allir leiðsögumennirnir okkar eru reyndir PADI atvinnukafarar sem hafa farið í gegnum sérstaka þjálfun fyr Silfru.
Við bjóðum upp á snorklferðir daglega í Silfru Silfru, allt árið um kring. Silfra er þeim eiginleikum gædd að vatnið er einstaklega tært og skyggni nær allt að 100 metrum. Undir yfirborðinu leynist dáleiðandi heimur sem á sér engan líkan í heiminum. Silfra liggur á flekaskilum Norður-Ameríkuflekans annars vegar og Evrasíuflekans hins vegar. Í Silfru er jökulvatn sem er marga áratugi að síast í gegnum hraunið á milli Þingvalla og Langjökuls. Vegna þessarar hraunsíunar er vatnið í Silfru sérstaklega tært og hreint sem gerir gestum kleift að sjá skýrt niður á botn af yfirborðinu.
Hægt er að velja um að láta sækja sig og keyra á Þingvelli. Þeir sem vilja keyra sjálfir á áfangastað geta hitt okkur við Silfru. Þar finnur leiðsögumaðurinn til þurrgalla og snorklbúnað og útskýrir búnaðinn og öryggisreglur ásamt því að aðstoða gesti við að klæða sig í þurrgallann. Við notum hágæða þurrgalla frá BEAR sem halda gestum þurrum og hlýjum á meðan þeir fljó flýtur um í köldu vatninu.
Í ferðinni er farið í gegnum fjóra hluta Silfru. Byrjað er á því að fara í gegnum Stóru Sprungu sem er grannasti hluti Silfru en á þessu svæði eru flekaskilin svo lítil að kafarar sem senda þar í gegn geta snert báða veggi samtímis. Smám saman víkkar gjáin og komið er að Salnum. Í Salnum fá fegurstu litir Silfru að láta ljós sitt skína og skyggnið virðist óendanlegt. Á vissum stað í Salnum má sjá alla leið út í sjálft Þingvallavatn sem er í 150 metra fjarlægð. Eftir grynningarnar er svo komið að Dómkirkjunni sem nær niður á 23 metra dýpi. Margir upplifa sig fljúga þegar þeir koma inn kirkjuskipið og þetta er af mörgum talin hápunktur ferðarinnar. Að lokum er komið í Lónið þar sem gestir geta flotið um og skoðað litríka þörunga og lífríkið sem lifir þar.
Við mælum með að fólk smakki á vatninu. Eftir að hafa runnið í gegnum hraunsíuna alla leiðina frá Langjökli á 30-100 árum er vatnið í Silfru sértaklega tært og hreint.
Highly recommended
We want to thank you so much for a wonderful day, it was an amazing day and experience for all of us. Clarence was our gide, he was an amazing guy, everything was explained from beginning to the end, no rush, no time limit. Perfect
The pictures are amazing. Highly recommended
Nánari upplýsingar
-
Allt árið, daglegar ferðir
-
Finnurðu ekki ferð á dagsetningu sem hentar þér? Hafðu samband á [email protected] og við skoðum málið
-
Ferðin sjálf tekur um 2,5 tíma á Silfru. Það tekur um 45 mínútur að keyra frá Reykjavík á bílaplanið við Silfru
-
Aðeins 6 manns með hverjum leiðsögumanni
-
Lágmark 3 snorklarar. Við endurgreiðum þér að fullu ef lágmarksfjölda er ekki náð
-
Vinsamlegast mætið með:
- Föðurland - buxur og bol eða þykk undirföt
- Ullarsokka
- Fatnað sem hentar veðri
- Augnlinsur ef þið notið gleraugu að staðaldri
Innifalið í verðinu:
- Leiðsögn um Silfru
- Allur nauðsynlegur búnaður til þess að snorkla
- Heitt súkkulaði og smákökur eftir ferð
- Gjaldtaka Þjóðgarðsins í Silfru (1500 kr. á mann)
- Ef þú velur ferð með akstri þá er akstur milli Reykjavíkur og Þingvalla innifalinn
Íhugaðu að hita þig upp eftir Silfru með því að bæta við ferð í saunurnar og heitu pottana hjá Laugarvatn Fontana

POPULAR TIMES AT SILFRA
Ef þú ert að leitast eftir að vera meira út af fyrir þig eru prívat ferðirnar okkar málið
Öryggisreglur
Öryggisins vegna þurfa allir farþegar að:-
hafa lesið Snorkeling Silfra Heilsufarsyfirlýsinguna, fyllt hana út og skrifað undir áður en farið er í ferðina PDF
-
hafa fengið undirskrift læknis um að þeir hafi getu til þess að kafa í Silfru ef viðkomandi er 60 ára eða eldri PDF
-
Skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu í byrjun ferðar PDF
-
vera að minnsta kosti 150 cm og í mesta lagi 200cm á hæð
-
vera að minnsta kosti 45kg og ekki þyngri en 120kg
-
passa í þurrbúning sem er á stærðartöflunni okkar PDF
-
hafa náð 12 ára aldri
-
vera öruggir í vatni og kunna að synda
-
vera líkamlega og andlega heilbrigðir
-
vera tilbúnir til að klæðast þröngum og jafnvel hamlandi þurrgalla
-
geta talað ensku
-
ekki vera barnshafandi
-
borða vel fyrir ferðina
Timeline of your tour
Taktu minningarnar með þér heim
Upplifðu ferðina
Leiðsögumenn í þessari ferð
Þú munt fá leiðsögn frá einum þessara frábæru leiðbeinenda

