open-water-course-dive.is-iceland.jpg

Almenni pakkinn að vetri til

Lærðu að kafa með Sportköfunarskóla Íslands

Lærðu að kafa að vetri til

Viltu læra að kafa?
Við hjá DIVE.IS tökum vel á móti þér og kennum þér að kafa. DIVE.IS er fyrsta og eina köfunarfyrirtækið á Íslandi sem er fimm stjörnu PADI Dive Center köfunarmiðstöð. Taktu PADI Open Water köfunarnámskeiðið í náttúru Ísland og leggðu grunninn að köfunarævintýrum þínum.

Að námskeiðinu loknu munu þeir nemendur sem hafa klárað bóklega og verklega hlutann af námskeiðinu verða vottaðir sem PADI Open Water kafarar og geta kafað niður á 18 metra dýpi með köfunarfélaga án leiðbeinanda eða kennara hvar sem er í heiminum. Köfunarskírteinið gildir til lífstíðar og er alþjóðlega viðurkennt ISO staðlað nám

Hjá DIVE.IS bjóðum við upp á þriggja daga PADI Open Water námskeið á tímabilinu apríl - september þegar langir og hlýir dagar bjóða upp á fleiri klukkutíma í sólarhringnum til að kafa. Á veturna eru dagarnir styttri og kaldara og því er ekki hægt að taka námskeiðið jafn hratt. Við höfum því sett saman vetrar námskeið sem tekur 5 daga, dreift yfir 3 helgar. Með þessu fyrirkomulagi er hægt að greiða sér fyrir hverja helgi, eða hverja köfun!

Svona er vetrarnámskeiðið sett upp:
1.helgi: Bóklegi hlutinn (stutt yfirferð á laugardegi) og fimm köfunaræfingar í sundlaug (heill sunnudagur) á köfunarmiðstöðinni okkar og í sundlaug. Þetta er öðru nafni Grunnpakkinn: sem þýðir að ef þú hefðir áhuga á að klára verklega hlutann erlendis í heitum sjó, eða um sumar á Íslandi, færðu tilvísun frá okkur með þeim upplýsingum að þú hafir lært þá færni sem þarf til að halda áfram.
2.helgi: Kafanir 1 og 2, ein köfun hvorn dag
3.helgi: Kafanir 3 og 4, ein köfun hvorn dag

Verð og bókanir

  1. helgi. Grunnpakkinn: 34.990 kr.
  2. helgi. Hvor köfun: 29.990 kr. Ef þú klárar báðar 2 kafanir: 59.980 kr.
  3. helgi. Hver köfun 29.990 kr. Ef þú klárar báðar 2 kafanir: 59.980 kr.

Þú getur bókað fyrstu helgina í bókunarvélinni hér við hliðina. Ef þú ákveður að bíða eftir þessa fyrstu helgi hefurðu tvo möguleika:

  1. Að klára að ná þér í almennu köfunarréttindin þín, Open Water Diver, annarsstaðar til dæmis erlendis í hlýrri sjó. Ef þessi möguleiki er valinn færðu undirskrifað PADI eyðublað þar sem leiðbeinandinn þinn vottar að þú hafir lokið fyrri hluta námskeiðsins og getur því klárað námkeiðið erlendis. Þú hefur eitt ár til að klára námskeiðið.
  2. Að klára námskeiðið þegar sumarnámskeiðin byrja. Þér er velkomið að bóka þig á námskeið í apríl - september og greiða bara mismuninns sem er 85.000 kr. Hér má sjá allt um Almenna pakkann okkar.

Ef þú ákveður að klára vetrarnámskeiðið hefurðu einfaldlega samband við okkur á dive@dive.is og við finnum hvenær hentar þér best að klára miðað við þær dagsetningar sem eru í boði. Þú getur greitt fyrir hverja köfun eða hverja helgi, hvernig sem hentar þér best.

Um PADI Open Water réttindin
PADI Open Water námskeiðið er fyrsta skrefið í átt að því að verða löggildur kafari. Í þessu námskeiði vinnur þú náið með kennurum og leiðbeinendum námskeiðsins, þar sem farið er ítarlega í verklega hlutann af köfunarþjálfuninni og alla öryggisþætti til þess að kafa og um leið hafa gaman af því. Þú munt öðlast betri skilning á hvernig á að bera sig að í köfun, hvernig meðhöndla eigi búnað og bæta við þig reynslu þar til þú verður sjálfsöruggur kafari.

Hvað get ég gert þegar ég er búin með PADI Open Water?
Ásamt því að vera nú orðin gildur meðlimur í PADI köfunarsamtökunum þá opnar námskeiðið þér óteljandi dyr að nýjum ævintýrum. Með PADI Open Water skírteini í vasanum getur þú planað þínar eigin köfunarferðir, tekið þátt í skipulögðum ferðum með ferðaþjónustuaðilum eða köfunarsamtökum, skráð þig í Dive.is köfunarklúbbinn, skráð þig í Sportkafarafélag Íslands, skráð þig á framhaldsnámskeið Advance Open Diver eða PADI Specialty í köfun hjá hvaða PADI köfunarþjónustufyrirtæki í heiminum.

Hvað er gert á PADI Open Water námskeiðinu?
Bóklegi hlutinn - tilvalið að klára heima á meðan COVID-19 faraldurinn gengur yfir
Til þess að geta byrjað verklega hlutann þurfa allir þátttakendur að hafa lokið E-learning námi á PADI heimasíðunni, þar á meðal lokaprófi. Þar eru myndbönd, stuttar kannanir og lokapróf sem að er byggt upp þannig að hver og einn nemandi getur gert þetta á sínum hraða og þarf ekki að ljúka öllu í einu. Við sendum þér tengil á námsefnið eftir bókun og greiðslu námskeiðs. Athugið að það tekur um það bil 12 klukkutíma að fara í gegnum allt efnið, við mælum því með því að byrja að læra nokkrum dögum áður en námskeiðið byrjar.

Það sem námsefnið mun fara yfir er:
– Heimur undirdjúpanna
– Köfunarbúnaður
– Köfunarfélaga kerfi
– Köfunarumhverfið
– Samskipti
– Köfunarplan
– Áhættustýring köfunar
– Köfunar-töflur
– Köfunar tölvur
– Ratvísi.

Verklegi hlutinn
Í verklega hlutanum munt þú þurfa að klára fimm köfunaræfingar í sundlaug. Einnig þarf nemandi að geta framkvæmt eftirfarandi æfingar til viðbótar
– 200 metra sund án tímatöku

  • 10 mínútna flot æfing.

  • Þegar æfingum í sundlaug er lokið eru 2 kafanir skipulagðar á 2 dögum, í vatni eða sjó. Í þessum æfingum munt þú þjálfa þig í æfingum sem voru gerðar í sundlauginni.

Að námskeiðinu loknu munu þeir nemendur sem stóðust allar kröfur námskeiðsins vera útskrifaðir sem PADI Open Water kafarar. Þegar þú hefur lokið PADI Open Water námskeiðinu hefur þú lokið:

  • Fimm fræðilegum köflum um köfun, þar með talið er stöðupróf og lokapróf
  • Sundlaugarköfunum
  • 200m samfeldu sundi án tímatöku og 10 mínútna floti
  • Fjórum köfunum í vatni eða sjó.

Um Sportköfunarskóla Íslands (DIVE.IS)
Sportköfunarskóli Íslands hefur kennt fólki að kafa síðan 1997. Við notum nafnið DIVE.IS á erlendum markaði. Við erum stolt af því að vera 5 stjörnu PADI Dive Center en PADI samtökin eru virt köfunarsamtök sem gefa út flest köfunarréttindi í heiminum.

Nánar um köfunarnámskeiðið

  • Október - mars. Við erum líka með sumarnámskeið sem má skoða hér

  • Þetta námskeið er 5 dagar sem dreifist yfir 3 helgar

  • Að minnstu kosti 3 þátttakendur og í mesta lagi 4 þátttakendur á kennara

  • Sveigjanlegar greiðslur, hægt að greiða sér fyrir hverja helgi eða hverja köfun

  • Verðið inniheldur PADI eLearning registration fee (vottunargjald), sem er greitt beint til PADI. Þetta gjald er um það bil 10.000 kr.

  • ATH Þú munt þurfa að læra í u.þ.b. 12 tíma áður en námskeiðið byrjar

Frá ISK 154.950

Upplýsingar um námskeiðið

Fyrsti dagurinn er í sundlaug. Hinir fjórir dagarnir verða á þeim köfunarstað þar sem veður leyfir

eLearning námsefni:
Þú klárar öll "Knowledge Development" og próf á netinu á eigin hraða heima áður en þú kemur á námskeiðið og ferð svo í gegnum upprifjun með kennaranum áður en þú ferð í laugina.

Uppsetning námskeiðs
Dagur 1: Farið yfir eLearning námsefni með kennara og sundlaugardagur. Æfingar 1-5 kláraðar, 10 mínútna flot og 200m sund án tímatöku.
Day 2: Open Water Köfun 1
Day 3: Open Water Köfun 2
Day 4: Open Water Köfun 3
Day 5: Open Water Köfun 4

Þegar þú hefur lokið PADI Open Water námskeiðinu hefur þú lokið:
Fimm fræðilegum köflum um köfun, þar með talið stöðupróf og lokapróf
Sundlaugarköfunum
200m samfeldu sundi án tímatöku og 10 mínútna floti
Fjórum köfunum í vatni eða sjó.

Innifalið:

  • Leiðbeinandi með PADI réttindi
  • Allur útbúnaður
  • PADI Open water E-learning rafrænt námskeið
  • PADI vottunargjald
  • Sundlaugakostnaður
  • Sjókafanir
  • Aukakennsla er ekki innifalin

Stéttarfélag og aðrir möguleikar:

15% afsláttur af námskeiðum sem eru haldin í maí og júní! Þú notar einfaldlega kóðann DIVESPRING2021 í bókunarferlinu til að virkja afsláttinn.
Flest stéttarfélög greiða námskeiðið að hluti til, við hvetjum þig til að kanna þín réttindi.

  • visa.png
  • mastercard.png

Öryggisreglur

  • vera að minnsta kosti 17 ára (undirskrift lögráðanda ef þáttakandi er undir 18 ára)

  • vera í góðu líkamlegu formi

  • kunna að synda og líða vel í vatni

  • geta talað ensku

  • ekki vera barnshafandi

  • fylla út PADI Medical Statement

Þú gætir haft áhuga á þessu